Hýsing
Basic býður upp á trausta og sérhæfða hýsingu á WordPress vefsíðum. Við rekum þjónustu okkar með nýjustu tækni sem til er á markaðnum hverju sinni til að tryggja öryggi gagna og hámarka frammistöðu vefsíðna viðskiptavina okkar.
Hýsing
Leiðir í boði
Veldu þá hýsingarleið sem þér hentar, bættu við mánaðarlegum öryggisuppfærslum og pósthólfum og sjáðu verðið samstundis. Hýsing er ekki keypt á netinu — sendu okkur samsetninguna þína og við sjáum um afganginn.
Kjarni
Frábær byrjun fyrir markaðs- og upplýsingavefi.
- Hefðbundin mörk á samnýttum auðlindum
- Afrit tekin á 8 klukkustunda fresti
- Valfrjálsar mánaðarlegar öryggisuppfærslur
Settu saman pakkann
Kraftur
Fyrir netverslanir og kraftmikla vefi.
- Tvöföld mörk á samnýttum auðlindum
- Afrit tekin á 4 klukkustunda fresti
- Valfrjálsar mánaðarlegar öryggisuppfærslur
Settu saman pakkann
Kóngur
Sérþjónar, sniðnir að þínum þörfum.
- Eigin auðlindir
- Sérsniðin tíðni afritatöku
- Sérsniðin stefna um öryggisuppfærslur
Tölvupóstur: hvert pósthólf inniheldur 10 GB geymslurými; viðbótarrými kostar 990 kr. + VSK fyrir hver 10 GB til viðbótar. Greiðslur: mánaðarlega. Verð eru í ISK og birt án VSK nema kveikt sé á rofanum.
Hraði & öryggi
- Netþjónar í beinni umsjón Basic, uppfærðir reglulega
- Fyrsta flokks netþjónavélbúnaður sem tryggir hámarksafköst og öryggi
- Sjálfvirk bestun, svo efnið þitt er áfram hraðvirkt án frekari vinnu af þinni hálfu
- Mikill hraði með síðu- og hlutaskyndiminni (page + object cache), líka þegar gagnamagnið er mikið
- Öryggi með DDoS-vörn sem kemur í veg fyrir að sjálfvirk árásarumferð slái vefinn þinn út
- Regluleg öryggisafrit utan netþjóns með afritun (replication) — hugarró þótt eitthvað fari úrskeiðis
- TLS skilríki innifalin, svo öll samskipti við vefinn séu vernduð og örugg
- CDN innifalið, svo vefsíðan þín sé hröð um allan heim
- Sérfræðiaðstoð í tölvupósti með svörum við öllum WordPress spurningum þínum
Algengar spurningar
Samnýtt hýsing eða sérhýsing?
Í samnýttri hýsingu er vefsíðan þín á sama netþjóni og aðrar vefsíður. Það þýðir að heildarafköst netþjónsins eru samnýtt og ekki eyrnamerkt þér eingöngu. Til að allt gangi snurðulaust fyrir sig eru sett mörk á hversu mikið af tilföngum hver vefsíða má nota í samnýttum leiðum.
Í sérhýsingu er allur netþjónninn eyrnamerktur vefsíðunni þinni. Mörkin ráðast af vélbúnaðinum sem þú velur, svo sem vinnsluafli, vinnsluminni og diskaplássi. Þess vegna hentar sérhýsing vefsíðum með mjög mikla umferð eða kröfuharðar þarfir.
Flestar vefsíður þurfa ekki sérhýsingu. Fyrir mörg fyrirtæki bjóða samnýttu leiðirnar okkar (Kjarni og Kraftur ) meira en nægan hraða, diskapláss og áreiðanleika. Við fylgjumst með notkuninni og látum þig vita ef vefsíðan þín hefði gagn af öflugri leið. Sömuleiðis, ef þú ert að borga fyrir tilföng sem þú notar ekki, ráðleggjum við þér að færa þig í hagkvæmari leið.
Hver eru hefðbundin mörk á samnýttum tilföngum?
Við hýsum yfir 100 vefsíður og vitum því vel hvað virkar vel þegar tilföng eru samnýtt. Þess vegna setjum við ákveðin tæknileg mörk til að tryggja að svo sé.
Við ráðleggjum þér að byrja á Krafti vefhýsingunni ef þú ert með vefverslun, en á Kjarna ef þú ert með upplýsingavef eða ert ekki viss.
Af hverju skiptir hraði svo miklu máli?
Hraði skiptir máli vegna þess að:
- Sérhver sekúndu seinkun á hleðslutíma síðna minnkar líkur á kaupum um 7%. Sumir viðskiptavinir loka jafnvel síðunni þinni ef það tekur meira en 3 sekúndur að hlaða!
- Google verðlaunar vefsíður sem hlaðast hraðar inn.
- Ef þú ert að eyða peningum í stafræna markaðssetningu og lendingarsíður auglýsinga eru ekki hraðar og notendavænar, þá ertu ekki að hámarka þína möguleika á viðskiptum.
Hvað felst í öryggisuppfærslunum sem þið bjóðið?
Þegar þú ert með reglulegar öryggisuppfærslur sem viðbótarþjónustu setjum við uppfærslur inn á vefsíðuna þína a.m.k. mánaðarlega. Ef þú velur árlega uppfærslu þá uppfærum við einu sinni á ári.
Þessar uppfærslur taka til viðbóta, þema og WordPress kjarnans.
Við gerum einnig prófanir til að tryggja að uppfærslurnar hafi ekki komið neinu úr lagi. Ef þú tekur eftir einhverju óvenjulegu eftir uppfærslur hjá okkur, láttu okkur endilega vita! Við kippum því í lag um hæl.
Uppfærið þið premium viðbætur og þemu?
Aðeins ef þú ert með leyfið eða lætur okkur það í té.
Ef þú ert með óskráð þemu eða viðbætur uppfærum við þau ekki.
Hvað gerist þegar brýn öryggisuppfærsla er nauðsynleg?
Við setjum brýnar öryggisuppfærslur inn þótt það sé utan hefðbundinnar dagskrár.
Er stjórnborð í boði?
Nei, við notum ekki stjórnborð. Við stýrum netþjónunum okkar með skipanalínu til að lágmarka þá árásarfleti sem vefsíðan þín er berskjölduð fyrir.
Get ég fengið aðgang að skránum með SFTP?
Já! Þú þarft bara að biðja um það og við sendum þér SFTP notanda og dulkóðunarlykil.
Get ég fengið aðgang að gagnagrunninum?
Ekki utan frá. Þú þarft að nota viðbót til að vinna með gagnagrunninn á öruggan hátt.
Ef þú þarft heildarafrit af gagnagrunninum getur þú einnig fengið það úr öryggisafritunarkerfinu okkar.
Það var brotist inn á vefsíðuna mína! Af hverju gerðist það og getið þið hjálpað?
Flest innbrot á WordPress vefi verða vegna þess að uppfærslur höfðu ekki verið settar inn. Uppfærslur bæta ekki bara við nýjum eiginleikum og breytingum, þær loka líka öryggisholum.
Við getum að sjálfsögðu hjálpað þér að endurheimta vefsíðuna. Við byrjum á því að endurheimta öryggisafrit, uppfæra allt og hreinsa spilliforrit af vefsíðunni.
Tölvupóstur
Hvernig tengist ég pósthólfunum mínum?
Þú getur tengst póstinum þínum í vefpóstinum okkar án þess að setja upp nokkurt aukaforrit, eða með hvaða póstforriti sem er. Við sendum þér leiðbeiningar skref fyrir skref um hvernig það er gert.
Ég er þegar með pósthólfin mín annars staðar, get ég haft þau þar áfram?
Já, að sjálfsögðu. Við förum yfir hvort uppsetningin á póstinum þínum sé í lagi svo póstur frá þér haldi áfram að berast viðtakendum, og látum þig vita ef þú þarft að gera einhverjar breytingar hjá núverandi þjónustuaðila.
Ég er þegar með pósthólfin mín annars staðar, getið þið flutt þau?
Já, að sjálfsögðu. Þú lætur okkur bara fá aðgang að núverandi pósthólfum þínum og við sjáum um flutninginn.
Er hægt að áframsenda póstinn minn í annað pósthólf?
Já, láttu okkur bara vita og við setjum það upp fyrir þig.
Get ég fengið aukanetföng (alias)?
Já, allt að 5 fyrir hvert pósthólf.
Eru einhver takmörk?
Hvert pósthólf getur sent 100 tölvupósta á dag. Pósthólfið er ætlað til handvirkra sendinga, ekki magnsendinga.
Ef þú þarft að senda meira, til dæmis í markaðsherferð, láttu okkur vita — við getum líka hjálpað með það.
Takið þið öryggisafrit?
Já. Við tökum heildarafrit af netþjónunum og höldum að auki sérstökum eftirmyndum á öðrum netþjónum.
Basic
A great start for marketing & information websites.
- Standard shared resource limits
- Backups every 8 hours
- Optional monthly security updates
X.XXX kr
Premium
For webshops and highly dynamic websites.
- 2x shared resource limits
- Backups every 4 hours
- Optional security monthly updates
X.XXX kr
Pro
Dedicated servers, tailored to your needs.
- Dedicated resources
- Custom backups frequency
- Custom security updates policy