Tæknilegar upplýsingar um hýsingu
Nútímaleg WordPress hýsing byggð á öflugum innviðum, háu öryggi og tækni sem hámarkar hraða, stöðugleika og afköst vefsíðunnar.
Yfirlit yfir tæknilega innviði, öryggi, afköst og þær lausnir sem liggja að baki WordPress hýsingu Basic.
Netþjónar í fullri umsjón
Við útvistum hýsingunni ekki til þriðja aðila heldur rekum sjálf netþjóna í völdum, umhverfisvænum gagnaverum.
Við veljum vélbúnaðinn sem notaður er og höfum fulla stjórn á hugbúnaðarumhverfinu — allt frá stýrikerfi og uppsetningu netþjóna yfir í þær lausnir sem WordPress vefsíður viðskiptavina okkar nota.
Öflugur vélbúnaður
Við leggjum áherslu á öflugan og nýlegan vélbúnað og uppfærum innviði okkar reglulega til að tryggja sem besta upplifun og afköst.
Netþjónarnir okkar nýta öfluga AMD Zen örgjörva, DDR5 ECC vinnsluminni og hraðvirka Gen5 NVMe diska. Samsetningin tryggir mikinn vinnsluhraða, stöðugleika og hraðan lestur og skrif gagna.
Full einangrun milli vefsíðna
Vefsíður í hýsingu hjá okkur eru einangraðar hver frá annarri. Vandamál eða öryggisbrestur á einni vefsíðu hefur því ekki bein áhrif á aðrar vefsíður á sama netþjóni.
Hver vefsíða fær meðal annars sitt eigið gagnagrunnsaðgengi, skyndiminnisaðgengi og notanda í stýrikerfi.
Sjálfvirk bestun vefgagna
Hýsingarumhverfið okkar er samþætt við öfluga lausn sem bestar sjálfkrafa CSS- og JavaScript-skrár vefsíðunnar.
Myndir eru einnig þjappaðar og fínstilltar og meðal annars umbreyttar yfir í AVIF þegar við á.
Niðurstaðan er léttari vefsíða, minni gagnaflutningur og hraðari hleðslutími.
Öflug síðu-skyndiminni
Þegar WordPress vefsíða er opnuð þarf kerfið almennt að sækja upplýsingar úr gagnagrunni og byggja síðuna upp áður en hún birtist.
Með síðu-skyndiminni (page cache) er tilbúin útgáfa síðunnar geymd tímabundið og því þarf ekki að vinna hana upp frá grunni við hverja heimsókn.
Við nýtum lausn sem samþættist hýsingarumhverfinu okkar og dregur verulega úr hleðslutíma vefsíðna.
CDN fyrir hraðari hleðslu
CDN (Content Delivery Network) dreifir efni vefsíðunnar á netþjóna á mismunandi stöðum í heiminum svo það sé afhent notendum frá staðsetningu sem er sem næst þeim.
Þetta skiptir sérstaklega miklu máli fyrir vefsíður sem fá heimsóknir frá notendum utan Íslands.
Þegar Basic sér um DNS-stillingar vefsíðunnar samþættum við hana við Cloudflare, eitt stærsta CDN-net heims.
Við getum jafnframt tengt skyndiminni vefsíðunnar við CDN-kerfið svo síður geti hlaðist mjög hratt óháð staðsetningu notandans.
Object cache -hraðari virkni
Object cache geymir tímabundið gögn sem WordPress notar reglulega svo ekki þurfi að sækja og vinna sömu upplýsingarnar aftur og aftur úr gagnagrunninum.
Þetta getur meðal annars hraðað virkni í netverslunum og öðrum vefsíðum þar sem mikið er um gagnagrunnsvinnslu.
Við nýtum Redis-samhæft skyndiminniskerfi sem er samþætt beint við hýsingarumhverfið okkar og varið með sérstöku aðgangskerfi.
Fjölþætt öryggisvörn
Netþjónar og vefsíður í hýsingu hjá okkur njóta margra laga af öryggisvörnum, meðal annars:
- DDoS-vörn í gegnum CDN
- Sérsniðnar öryggisreglur á CDN-stigi
- DDoS-vörn á netþjónastigi
- Virkur eldveggur á netþjónastigi
Við höfum einnig samþættingu við Wordfence og nýtum lausnina á vefsíðum þar sem þörf er á auknu öryggi.
Regluleg afritun
Öryggisafrit skipta miklu máli en það er jafnframt mikilvægt að hafa skýrt ferli til að endurheimta gögn ef eitthvað kemur upp.
Við tökum reglulega sjálfvirk öryggisafrit sem eru geymd utan aðalhýsingarumhverfisins, á netþjónum á öðrum landfræðilegum svæðum og með margföldum afritum.
Hýsingarumhverfið okkar er einnig samþætt við afritunarlausn sem gerir mögulegt að taka sérstakt afrit af vefsíðu þegar þess er þörf.
Öruggar tengingar
Allar vefsíður í hýsingu hjá Basic fá TLS-öryggisskírteini með sjálfvirkri endurnýjun.
TLS tryggir dulkóðuð samskipti milli vefsíðunnar og vafra notandans og er grunnforsenda öruggra samskipta og viðskipta á netinu.
Við styðjum einnig nútímalegar öryggisráðstafanir á borð við HSTS sem tryggir að vafrinn noti ávallt örugga HTTPS-tengingu.
Nútímalegt umhverfi
Við höldum hugbúnaðarumhverfi netþjónanna uppfærðu og nýtum nýlegar og studdar útgáfur af meðal annars PHP, MariaDB og öðrum lykilhlutum kerfisins.
Reglulegar öryggisuppfærslur og nútímalegt hugbúnaðarumhverfi stuðla bæði að auknu öryggi og betri afköstum.
Við látum okkur ekki nægja sjálfgefnar stillingar heldur fínstillum umhverfið með það að markmiði að ná sem bestum árangri fyrir WordPress.
WordPress sérfræðingar
Við þekkjum WordPress vel og viðskiptavinir okkar geta leitað til teymisins þegar spurningar eða verkefni koma upp.
Við getum aðstoðað með mun meira en hefðbundin hýsingarmál, til dæmis:
- þróun og breytingar á virkni
- uppsetningu og tengingu við þriðja aðila
- viðbætur og samþættingar
- efnisbreytingar og almenna WordPress aðstoð
Slík vinna er rukkuð samkvæmt gildandi tímagjaldi Basic nema annað hafi verið samið sérstaklega.