Persónleg þjónusta & mælanlegur árangur

Markaðsteymið þitt í áskrift

Þú færð einn verkefnastjóra og heilt teymi sérfræðinga á bak við hann — auglýsingar, samfélagsmiðla, hönnun, ljósmyndun og vefumsjón, allt á einum stað, á föstu mánaðargjaldi sem er sniðið að þínum rekstri.

Heildstæð markaðsþjónusta

Allt á einum stað

Hentar fyrirtækjum sem vilja ekki púsla saman auglýsingastofu, hönnuði, ljósmyndara og vefumsjónaraðila í sitt hvoru lagi — heldur einu teymi sem sér um markaðsmálin frá A til Ö.

Dæmi um þjónustuliði sem falla undir mánaðarlega áskrift: stafrænar markaðsherferðir, umsjón samfélagsmiðla, hönnun á markaðsefni, ljósmyndun, vefumsjón og skýrslugerð.

Traustur samstarfsaðili

Áherslur okkar í hnotskurn

Persónuleg þjónusta

Hver samstarfsaðili fær sinn eigin verkefnastjóra sem sér um öll samskipti og bregst hratt við öllum fyrirspurnum sem berast.

Skilvirkni

Við nýtum nýjustu tækni og gervigreind til að vinna hraðar og skilvirkar, og stöndum við tímamörk, jafnvel þó fyrirvari sé stuttur.

Öflugt teymi sérfræðinga

Teymi sérfræðinga með þekkingu á öllu sem viðkemur markaðssetningu, stafrænum miðlum og vefumsjón — allt á einum stað.

Vönduð vinnubrögð

Við förum yfir allan texta, hönnun og auglýsingar og sendum til samstarfsaðila okkar til yfirferðar áður en efnið fer í loftið.

Hagstæð verð

Alþjóðlegt teymi gerir okkur kleift að bjóða samkeppnishæf verð án þess að gefa eftir í gæðum á öllum sviðum þjónustunnar.

Mælanlegur árangur

Ítarlegar mánaðarskýrslur á mannamáli sem sýna niðurstöður á skýran hátt og nýtast til að bæta árangur í markaðsstarfi.

Markaðsteymi í áskrift

Nánari útlistun á þjónustuliðum

Umsjón samfélagsmiðla

Við gerum birtingaráætlun samfélagsmiðla sem inniheldur sex pósta í mánuði. Tveir póstar birtast á bæði á fb & insta svo miðað er við að einn póstur birtist vikulega á báðum miðlum.

Meta herferðir

Við sjáum um grafík, hreyfihönnun og uppsetningu á mánaðarlegum fb/insta herferðum. Hver herferð inniheldur fimm auglýsingasett í þremur stærðum.

Google ads herferðir

Google ads herferðir

Uppsetning og eftirfylgni (bestun) á vefborða- (Display) og leitarauglýsingum (Search) í auglýsingakerfi Google & Microosft (Bing). 

YouTube herferðir

Við sjáum um að vinna fullbúnar auglýsingar með myndbandaklippum eða hreyfihönnun með ljósmyndum. Við sjáum einnig um uppsetningu & umsjón.

Ljósmyndun & vinnsla

Við erum með frábæra ljósmyndara í teyminu okkar og tökum við faglegar ljósmyndir eftir þörfum (1-2 á ári) og sinnum allri myndvinnslu.

Grafík & hreyfihönnun

Við útbúum grafík og hreyfihönnun eins og matseðla, bæklinga, auglýsingar fyrir hina ýmsu miðla, bæði fyrir vef og prent.

Vefumsjón

Regluleg umsjón með vefnum sem felur í sér smávægilegar efnis- og tæknilegar uppfærslur.

Vef- og markaðsráðgjöf

Við erum ávallt til staðar fyrir okkar viðskiptavini og veitum ráðgjöf í öllu sem viðkemur vef- og markaðsmálum.

Skýrslugerð

Við útbúum mánaðarlegar árangursskýrslur með lykiltölum frá Google Analytics, Google Search Console, Meta og Google.

Aðrir þjónustuliðir

Viðskiptvinir okkar í markaðsþjónustu fá sérkjör

Vefsíðugerð

Við sérhæfum okkur í WordPress vefumsjónarkerfinu. Við leggjum áherslu á stílhreina hönnun, skilvirkni og skalanleika.

Leitarvélarbestun (SEO)

Greining, skýrslugerð, aðgerðaáætlun og úrbætur til að auka sýnileika fyrirtækisins í helstu leitarvélum.

Hýsing

Heimsklassa hýsingarþjónusta fyrir WordPress vefi þar sem mikil áherslu er lögð á nýjustu tækni, hraða og öryggi.

AI sýnileikabestun

Greining, skýrslugerð, aðgerðaáætlun og úrbætur til að auka sýnileika fyrirtækisins í helstu gervigreindartólum.

Myndbandagerð

Við tökum upp og framleiðum flottar klippur sem við nýtum á samfélagsmiðlum og í auglýsingagerð. Við sjáum um allt ferlið.

Umsjón markpósta

Umsjón með markpóstum í Mailchimp eða Klaviyo, þar á meðal skipulagningu, hönnun og útsendingu. 

Vörumerkjahönnun

Hönnun á merki og grunnþáttum vörumerkis.
Afhent í helstu skráarsniðum fyrir prent og stafrænt.

Hönnunarstaðall

Mótun og skráning á sjónrænni stefnu fyrirtækisins, þar á meðal litanotkun, leturvali, merki og öðrum hönnunarþáttum.

Pakkningahönnun

Hönnun á umbúðum og merkimiðum í samræmi við vörumerkið. Afhent í fullunnum prentskrám.