Grafík og hreyfihönnun

Hjá Basic starfar alþjóðlegt teymi grafískra hönnuða með fjölbreytta reynslu og þekkingu. Við leggjum áherslu á að allt markaðsefni endurspegli tón, stíl og ásýnd hvers fyrirtækis og myndi sterka og samræmda heild þvert á miðla.

Hreyfigrafík gegnir sífellt stærra hlutverki í stafrænni markaðssetningu. Vel útfærð hreyfing getur fangað athygli, komið skilaboðum hratt til skila og hjálpað vörumerkjum að skera sig úr í stöðugu flæði efnis á samfélagsmiðlum og öðrum stafrænum miðlum.

Hönnunarstaðall

Við höfum útbúið hönnunarstaðla fyrir fjölda fyrirtækja. Heftið inniheldur upplýsingar um liti, leturgerð, einkennisorð, setningar o.fl.