Aurora Seafood bað okkur að gera kynningarmynband fyrir sæbjúguveiðar á báti sínum á Austurlandi. Myndbandið er ætlað til kynningar fyrir samstarfaðila fyrirtækisins og kaupendur. Verkefnið var áhugavert og öðruvísi en tökumaður þurfti að gista tvær nætur í bátnum og vinna við krefjandi aðstæður. Allt gekk þetta þó vel og gerðum við þrjár mislangar útgáfur af myndbandinu fyrir félagið.